Útistofa í Heiðmörk
Náttúruskóli Reykjavíkur hefur í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur og Vinnuskóla Reykjavíkur útbúið útikennslustofu í skógarrjóðri í Heiðmörk. Útikennslustofan er staðsett við bæinn Elliðavatn.
Í Heiðmörk eru möguleikar til útikennslu óþrjótandi. Á svæðinu er fjölskrúðugt dýralíf og gróðurfar er afar fjölbreytt. Útikennslustofan er liður í því að auðvelda kennurum og öðrum sem vinna með börnum að nýta náttúruna til kennslu í sem flestum námsgreinum grunnskólans.
Hægt er að nýta sér akstur strætisvagns nr. 19 í Norðlingaholt en þaðan er 15-20 min gangur, eftir göngustíg, að útikennslustofunni.
