Náttúruskóli Reykjavíkur er samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur, Skógræktarfélags Reykjavíkur og Landverndar.
Náttúruskóli Reykjavíkur er þar að auki í samstarfi við fjölmarga aðila sem sinna vettvangsfræðslu í Reykjavík. Náttúruskólinn er tengiliður þessara aðila við grunn- og leikskólana og saman mynda þeir dýrmætt bakland skólans.